Fara í vöruupplýsingar
1 af 1

Yellow Tail Moscato 75 CL

Yellow Tail Moscato 75 CL

Venjulegt verð 1.999 ISK
Venjulegt verð Söluverð 1.999 ISK
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn

Casella-fjölskyldan flutti frá Sikiley til Ástralíu um miðbik síðustu aldar og hélt þar áfram sömu iðju og hún hafði stundað í heimalandinu, þ.e. vínrækt. Á síðustu áratugum hefur fjölskyldan byggt upp eitthvert helsta vínfyrirtæki Ástralíu fyrir tilstuðlan vína sem seld eru undir nafninu Yellow Tail. Það er talið eitt sterkasta vínvörumerki (brand) Ástralíu og þriðja öflugasta vínvörumerki í heimi. Auðvitað má rekja þennan árangur til vel heppnaðrar markaðssetningar í bland við vín sem nær að höfða til mjög breiðs hóps og er á góðu verði. Í seinni tíð hefur Casella-fjölskyldan (sem enn á fyrirtækið) verið að feta sig áfram í framleiðslu á vínum í hæstu gæðaflokkum. 

Ljóslímónugrænt að lit, létt fylling og mjúk, sæt og frískandi sýra, kolsýrukítl með brögðum af vínberjum, peru, litsí, ástaraldin, kiwi og sætum melónum.

Magn

Skilmálar

Aldurstakmark 20 ára

Lestu skilmálana hér

Afhending

Hægt að sækja pantanir til okkar. Bjóðum upp á heimsendingu á Akureyri.

Skoða allar upplýsingar