Terms of service

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu ⁦www.kaltoggott.is⁩. Eigandi Kalt&Gott er í eigu Ungverska einkahlutafélagsins Icelandic Trading Ltd. 

Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Kalt&Gott annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hinsvegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu ⁦kaltoggott.is⁩ teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 20 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Kalt&Gott áskilur sér rétt til að neita afhendingu á vörum ef kaupandi hefur ekki náð 20 ára aldri. 

Kaupandi hefur leyfi til að nota ⁦kaltoggott.is⁩ og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Kalt&Gott setur Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu. Kalt&Gott áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup verður það tilkynnt til lögreglu. Kalt&Gott áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

Kalt&Gott áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu ⁦kaltoggott.is⁩ telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað. Kalt&Gott áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða aldurstakmarka og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

 

Heimsendingargjald er 1.600 kr. og er í boði fyrir 600-603 + Lónsbakka. 
Hægt að hafa samband fyrir sendingar utan ofannefnd póstnúmer og við reynum að koma til móts við það. 

Icelandic Trading